Markmið áfangans er að upplýsa nemendur um hvað ferðaþjónusta er og hvað felst í góðri ferðaþjónustu. Leitast er við að upplýsa nemendur um helstu ferðamannastaði á Íslandi og þeir þjálfaðir í að skipuleggja ferðir og ferðatengda þjónustu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
því hvernig ferðaþjónusta á Íslandi er skipulögð og hverjir eru hagsmunaaðilar/-samtök
hvað felst í góðri ferðaþjónustu
hlutdeild starfsmanna í árangri ferðaþjónustu
• helstu ferðamannastöðum á Íslandi og einkennum þeirra
því sem er sérstakt og eftirsóknarvert á Suðurnesjum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að skipuleggja ferðir fyrir mismunandi markhópa
veita haldgóðar upplýsingar sé þess óskað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera úrræðagóður við ýmiss konar aðstæður í starfi