Nemendur kynnist landafræði Jarðarinnar, lífsháttum, menningu og náttúrufari. Leitast er við að kynna fyrir nemendum áhugaverða staði vítt og breytt um heiminn og hvernig skipuleggja megi ferðir þangað.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
heimsálfunum og staðsetningu þeirra á korti
stærstu löndum og staðsetningu þeirra
helstu menningarsvæðum
ólíku náttúrufari
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér kort til upplýsingagjafar
geti aflað sér upplýsinga t.d af netinu og miðlað þeim til kúnna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geti gefið hagnýtar upplýsingar til ferðamanna og skipulagt ferðir á framandi slóðir. ...sem er metið með... verkefnavinnu