Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1367113359.79

    Íþróttaþjálfun til náms
    ÍÞJÁ3ÍN03
    1
    íþróttaþjálfun
    Íþróttaþjálfun til náms
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Nemendur þurfa að stunda markvisst og skipulega íþrótt sína 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara. Sérstök áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun út frá æfinga- og keppnisálagi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
    • hvað líkamlegt form sé og hvernig það sé þjálfað markvisst og skipulega
    • mikilvægi þess að æfa rétt út frá æfinga- og keppnisálagi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta líkamlegt form sitt og hvernig æfingu eigi að iðka hverju sinni út frá æfinga- og keppnisálagi
    • meta kosti og galla sína sem íþróttamann í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri
    Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Nemendur þurfa ekki að skila neinum verkefnum, en krafist er þess að nemendur stundi íþrótt sína 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara ásamt því að krafist er 90% mætingar í kennslustundirnar (ein í hverri viku).