Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1367114729.79

    Íslenska 3 á starfsbraut
    ÍSLE1ÍC05
    3
    íslenska
    Íslenska á starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn auki kunnáttu sína í þeim samskiptaleiðum sem henta honum. Unnið er að því að nemendur auki orðaforða sinn og málskilning og treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar, lesi fjölbreytta texta, bókmenntatexta á auðlesnu máli, ýmsa texta sem birtast í dagblöðum, tímaritum og á netinu. Nemendur fá þjálfun í ritun og tjáningu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tjáskiptaleiðum sem henta honum
    • mikilvægi lestrar og bókmennta
    • mikilvægi tjáningar og hlustunar
    • ritun mismunandi texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðferð máls með auknum orðaforða og málskilningi
    • að lesa mismunandi texta sér til gagns
    • hlustun og tjáningu
    • ritun mismunandi texta við sitt hæfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í umræðum og rökræðum ...sem er metið með... umræðum
    • lesa bókmenntaverk og ýmsa aðra texta s.s. fréttir í dagblöðum og á neti ...sem er metið með... skriflegum og munnlegum verkefnum
    • hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir ...sem er metið með... skriflegum og munnlegum verkefnum
    • ita einfalda texta, sögur og ljóð ...sem er metið með... skriflegum verkefnum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.