Í áfanganum er lögð áhersla á að efla málfræðigrunn nemenda ásamt almennum lestri og lesskilningi. Unnið er að því að nemendur auki orðaforða sinn og málskilning og treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar, lesi fjölbreytta texta, bókmenntatexta á auðlesnu máli, ýmsa texta sem birtast í dagblöðum, tímaritum og á netinu. Nemendur fá einnig þjálfun í hlustun og ritun.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu grunnatriðum málfræðinnar
mikilvægi lestrar og bókmennta
mikilvægi hlustunar
ritun mismunandi texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðferð máls með auknum orðaforða og málskilningi
að lesa mismunandi texta sér til gagns
hlustun og úrvinnslu hennar
ritun mismunandi texta við sitt hæfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina einföld málfræðiatriði ...sem er metið með... skriflegum verkefnum
lesa bókmenntaverk og ýmsa aðra texta s.s. fréttir í dagblöðum og á neti ...sem er metið með... skriflegum og munnlegum verkefnum
hlusta á upplestur og ná inntakinu ...sem er metið með... hlustunarverkefnum
rita einfalda texta, sögur og ljóð ...sem er metið með... skriflegum verkefnum
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.