Í áfanganum verður farið yfir helstu þætti sem einkenna líf í sjó og á landi. Byggingu frumna, flokkun lífvera, ljóstillífun, öndun, osmósu, æxlun lífvera, dreifkjörnunga og heilkjörnunga, frumbjarga og ófrumbjarga lífverur svo fátt eitt sé nefnt. Nemendur fá einnig kynningu og erfðafræði og vistfræði.
Inngangur að náttúruvísindum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vísindalegum aðferðum
uppbyggingu frumu, starfsemi hennar og hlutverki
uppbyggingu og starfsemi dreif- og heilkjörnunga
hvað það er sem einkennir frumbjarga og ófrumbjarga lífshætti
hringrás orku og efna í náttúrunni
ljóstillífun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita vísindalegum aðferðum
lýsa í máli og myndum uppbyggingu frumu, starfsemi hennar og hlutverki
lýsa byggingu og starfsemi dreif- og heilkjörnunga
útskýra hringrás orku og efna í náttúrunni
lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
tjá kunnáttu sína bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefni áfanganas og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun
átta sig á tengslum viðfangsefna áfangans við aðra þætti samfélagsins
tjá sig um einstaka efnisþætti
beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi og unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.