Nemendur þurfa að stunda markvisst og skipulega íþrótt sína 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara. Sérstök áhersla er lögð á liðleikaþjálfun (hreyfiteygjur) og fyrirbyggjandi æfingar
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
hvað líkamlegt form sé og hvernig það sé þjálfað markvisst og skipulega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta líkamlegt form sitt
meta kosti og galla sína sem íþróttamann í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Nemendur þurfa ekki að skila neinum verkefnum, en krafist er þess að nemendur stundi íþrótta sína 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara ásamt því að krafist er 90% mætingar í kennslustundirnar (ein í hverri viku).