Í áfanganum verður farið yfir grunnatriði næringarfræðinnar, s.s. manneldismarkmið, orkuþörf (grunnorku og heildarorku), orkuefnin (prótein, fitu og kolvetni) og bætiefnin (vítamín og steinefni). Einnig verður farið yfir hvað orka sé, hvernig á að lesa úr næringarefnatöflum og vörumerkingum ásamt mismunandi fæðuuppbyggingu, s.s. megrunarfæði, fitusnautt fæði, próteinskert og próteinríkt fæði, grænmetisfæði og maukfæði. Að lokum verður farið yfir ýmis lög og reglugerðir sem tengjast næringarfræðinni. Í áfanganum verður farið yfir matardagbóksgerð og hvernig sé hægt að skoða samsetningu fæðunnar hjá sér (www.matarvefurinn.is)
Inngangur að náttúruvísindum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi næringar fyrir heilsu og vellíðan ólíkra hópa fólks
hver orkuefnin séu og hvaða hlutverkum þau gegna í líkamanum
hver bætiefnin séu, úr hvaða fæðuflokkum við fáum þau og hvaða hlutverkum þau gegna í líkamanum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja muninn á hinum ýmsu orku- og bætiefnum
lesa vörumerkingar og meta næringargildi vörunnar í heild og skammtastærð og þannig meta gæði hennar (næringarlega)
meta skammtastærðir hinna ýmsu vörutegunda
nýta sér veraldarvefinn (t.d. www.matarvefurinn.is) til að skoða og meta samsetningu stakrar máltíðar sem og allra máltíða dagsins
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vega og meta gæði hinna ýmsu vörutegunda út frá næringargildi þeirra ...sem er metið með... umræðum, munnlegum og skriflegum verkefnum, prófum og verkefnum unnum á www.matarvefurinn.is
vega og meta gæði fæðusamsetningarinnar ...sem er metið með... umræðum, munnlegum og skriflegum verkefnum, prófum og verkefnum unnum á www.matarvefurinn.is
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.