Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1367276248.79

    Inngangur að náttúruvísindum, starfsbraut
    INNÁ1IS04
    1
    inngangur að náttúruvísindum
    Inngangur að náttúruvísindum, starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í þessum áfanga fer fram kynning á náttúruvísindum. Lögð verður áhersla á að nemendur læri að þekkja og skilja náttúruna og þau öfl sem að móta hana. Sérkenni íslenskrar náttúru, lífríki, jarðfræði og veðurfar verða tekin fyrir. Nemendur læra og þjálfast í algengum hugtökum eins og vegalengdum, metrakerfinu, hitastigi, rúmmáli, massa og eðlismassa. Lögð verður áhersla á að nemendur kynnist þessum atriðum með vettvangsferðum og verklegri kennslu. Nemendur læra einnig að afla sér upplýsinga á netinu og halda kynningar um námsefnið.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengustu fuglategundum á Íslandi og hvernig má þekkja þær
    • lífríki sjávar og helstu nytjategundir
    • hvar eldvirkni er á Íslandi og mögulegar afleiðingar eldgosa
    • hvar jarðskjálftar verða á Íslandi og mögulegar afleiðingar jarðskjálfta
    • landafræði Íslands
    • metrakerfinu og skilji samhengið milli, mm, cm, m og km
    • þyngd hluta og skilji samhengið á milli mg, gr og kg
    • rúmmáli kassalaga hluta og hverng hægt er að mæla það
    • rúmmáli óreglulegra hluta og hvernig hægt er að mæla það
    • eðlismassa hluta og hvernig hægt er að reikna hann út
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina fugla og kunna að nota fuglavísa
    • nota landakort til að átta sig á staðháttum
    • lesa úr veðurspám og finna veðurspá fyrir ákveðna staði á www.vedur.is
    • mæla lengd á hlutum uppá mm, cm og m
    • breyta kílómetrum í metra
    • mæla þyngd á hlutum
    • breyta kílógrömmum í grömm og grömmum í kílógrömm
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu ...sem er metið með... verklegum æfingum umræðum og kynningum
    • vinna í hóp til að auka skilning á fyrirbærum í náttúrunni ...sem er metið með... vettvangsferðum og umræðum um þær
    • tengja fyrirbæri í náttúrunni við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi náttúrunnar ...sem er metið með... þáttöku í umræðum og verklegum æfingum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.