Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1367279131.83

    Úrganslist, starfsbraut
    MYNL1ÚS05
    1
    myndlist
    starfsbraut, úrganslist
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á hugmynda- og tilraunavinnu þar sem unnið er í og með ólík efni og miðla auk þess sem farið verður í grunnatriði teikningar, form- og litafræði. Unnið verður með efni sem alla jafna er hent og því gefið nýtt líf þannig að nemendur kynnast því að í myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er
    • blöndun grunnlita í litatóna
    • að hægt er að skapa raunveruleg verðmæti úr úrgangi
    • vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar
    • mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
    • að miðla listsköpun sinni með því að sýna verk sín
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita skapandi hugsun
    • blanda liti og litatóna
    • skilningi á formum og uppbyggingu þeirra
    • sjá möguleika í úrgangi sem öllu jafna er hent og gefa nýtt hlutverk
    • beita mismunandi miðlunarleiðum í listsköpun sinni
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • era skapandi í hugsun ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
    • skapa list úr úrgangi ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
    • fullvinna hugmyndir undir leiðsögn kennara ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
    • skapa eigin verk byggð á eigin listrænum styrk undir leiðsögn kennara ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
    • vinna á persónulegan hátt með eigin hugmynd og útfæra hana í myndverki með tilliti til lita-, og formfræði og myndbyggingar ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
    • standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar listrænum styrk sínum ...sem er metið með... framkvæmd sýningar og skriflega
    • tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur ...sem er metið með... umræðum
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
    • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
    • meta eigið vinnuframlag ...sem er metið með... umræðum og skriflega
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.