Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1368184624.56

    Aðstoð við tannlækningar 1
    AVTA2AS10(FÁ)
    1
    Aðstoð við tannlækningar
    Aðstoð við stól, frágangur og sótthreinsun, móttaka, skráning
    Samþykkt af skóla
    2
    10
    Áfanginn byggir á starfsþjálfun á aðgerðarstofu (klinik). Nemandi skal aðstoða við mismunandi verk sem fara fram við tannlæknastólinn. Þjálfað er í undibúningi fyrir komu þjónustuþega, móttöku þjónustuþega, skráningu á tannkort og tryggingaeyðublöð, aðstoð við tannlæknastólinn ásamt þjálfun í frágangi og sótthreinsun áhalda og efna eftir meðferðir.
    Allt bóklegt nám tanntækna
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skipulagi vinnudags á almennum tannlæknastofum
    • undirbúningi fyrir mismunandi aðgerðir
    • aðstoð við almennar tannlækningameðferðir
    • skráningu á upplýsingum og aðstoð við það
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • undirbúa tannlæknastofu fyrir mismunandi aðgerðir við tannlæknastól svo sem forvarnaraðgerðir, skoðanir og greiningar, almenna tannfyllingu, rótfyllingar og tannvegsaðgerðir
    • meðhöndla efni og tæki sem notuð eru við mismunandi aðgerðir á tannlæknastofu
    • skrá á tannkort og tryggingaeyðublöð
    • aðstoða við mismunandi aðgerðir
    • ganga frá eftir aðgerðir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bera ábyrgð á undirbúningi tannlæknastofu fyrir komu þjónustuþega
    • taka á móti þjónustuþega af fagmennsku á viðeigandi hátt
    • aðstoða af fagmennsku við mismunandi aðgerðir á tannlæknastofu
    • vera virkur þátttakandi við mismunandi aðgerðir í munni og hafa yfirsýn
    • stuðla að því að vinnuferlið gangi vel fyrir sig og sjá til þess að frágangur sé til fyrirmyndar
    • sótthreinsa og dauðhreinsa eftir því sem við á aðgerðarstofu fyrir og eftir aðgerðir
    • ganga frá og nýta þau efni og tæki sem notuð eru á sem bestan hátt
    • stuðla að heilbrigði og velferð þjónustuþega sem og starfsfólks á tannlæknastofu
    • geta nýtt sér þekkingu um aðstoð í raunhæfu umhverfi og geta sjálfur lagt gagnrýnið mat á hvað er vænlegt til árangurs
    Símat og ferilbók