Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1368698195.46

    Hagnýting heildareiknings, runur og raðir
    STÆR3RR05
    3
    stærðfræði
    Hagnýting heildareiknings, runur og raðir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Hagnýttur heildareikningur, s. s. rúmmáls- og yfirborðsreikningar og ferillengd. Runur og raðir, samleitniprófanir: Heildispróf, samanburðarpróf, hlutfalls- og rótarpróf. Veldaraðir o. fl.
    STÆR3DÓ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu aðferðum við að leysa ákveðin og óákveðin heildi og hvernig túlka megi ákveðin heildi sem rúmmál eða yfirborð hluta
    • því hvað sé samleitin runa og hvað sé samleitin röð
    • hagnýtingu framangreindrar stærðfræði á öðrum sviðum, s.s. í hagfræði, náttúruvísindum, umhverfismálum, tæknifræði, o.s.frv.
    • hvernig lýsa megi hlutum úr daglegu lífi með runu og/eða röð
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita hlutheildun, innsetningu og brotaliðun við lausn heilda
    • lýsa rúmmáli og yfirborði snúða með heildi
    • reikna markgildi runa
    • beita ýmsum samleitniprófunum á viðeigandi raðir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.