Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1369605581.76

    Hagnýt íslenska 2
    ÍSLE1TL03
    4
    íslenska
    Læsi, ritun, tjáning
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í lestri á fjölbreyttu efni, svo sem afþreyingarefni, fagurbókmenntum, nytjatextum, rafrænu og myndrænu efni. Nemendur kynnast helstu grunnhugtökum um málnotkun og ritun og þjálfast í að koma skoðunum sínum, túlkun og úrvinnslu á ýmiskonar efni til skila á fjölbreyttan hátt
    Hagnýt íslenska 1
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ýmsum hugtökum í ritun
    • stafrænu læsi og miðlalæsi
    • ólíkum aðferðum við úrvinnslu efnis og upplýsinga
    • notkun mismunandi miðla við efnisgerð og þekkingarsköpun
    • helstu atriðum varðandi munnlega framsetningu efnis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lestri fjölbreyttra texta
    • ýmiskonar ritun til dæmis blaða- og vefgreina, gagnrýni, lagatexta, handrita og smásagna
    • kynningu á eigin efni og annarra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • takast á við álitamál í ræðu og riti
    • velja sér viðfangsefni og aðferðir við úrvinnslu þess
    • túlka og meta ýmiskonar texta og myndmiðla og koma þeirri túlkun á framfæri á markvissan og skipulegan hátt
    Kennari veitir nemendum reglulega endurgjöf á vinnuframlag þeirra og verkefnaskil, m.a. með einstaklingsviðtölum. Nemendur fá skýrar leiðbeiningar um verkefni sín og það sem betur má fara áður en kemur að lokaskilum. Nemendur skila verkefnum jafnt og þétt yfir önnina og safna þeim í vinnumöppu. Ekki er gert ráð fyrir lokaprófi í áfanganum. Námsmat getur farið fram með ólíkum hætti eftir þörfum einstaklinga.