Í áfanganum eru grunnhugtök og meginviðfangsefni þjóðhagfræðinnar kynnt. Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstæðir þjóðarbúsins og tengsl þeirra. Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi. Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun vísitalna, hlutfallareiknings og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum. Áhersla er lögð á að nemendur geti hagnýtt sér Netið til öflunar tölulegra upplýsinga. Nemendur vinna sjálfstæð verkefni sem tengjast efnahagsþróun á Íslandi í dag og taka þátt í umræðum sem tengjast hagfræði. Kennsluaðferðir miða að auknu sjálfstæði og ábyrgð nemenda á eigin námi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hagfræði sem fræðigrein, meginviðfangsefnum hennar og grundvallarspurningum
mismunandi hagkerfum; innviðum hagkerfa og hlutverkum þeirra
lögmálum markaðarins, framboði og eftirspurn og meginþáttum verðmyndunar á markaði
helstu aðilum og launamyndun á vinnumarkaði, umsvifum hins opinbera í efnahagslífi
aðilum á peningamarkaði og hlutverki seðlabanka
utanríkisviðskiptum, kenningum um hlutfallslega yfirburði og algjöra yfirburði
gengi gjaldmiðla, nafngengi og tilhögun við skráningu á gengi íslensku krónunnar
vandamálum í efnahagslífinu; verðbólgu, atvinnuleysi og erlendum skuldum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota framboðs- og eftirspurnarlínurit til að skoða þróun á markaði
reikna út þjóðhagstærðir á föstu verðlagi og hlutfallslegar breytingar á milli ára
reikna hagvöxt, þekki helstu ákvörðunarþætti og vanda við mat á hagvexti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja mat á upplýsingar um efnahagsmál
taka þátt í daglegri efnahagsumræðu út frá faglegu sjónarmiði
tengja undirstöðuþekkingu í þjóðhagfræði við þróun efnahagsmála
afla sér frekari þekkingar um hagfræði og geti nýtt upplýsingatækni og Netið við öflun upplýsinga og lausn verkefna sem tengjast hagfræðilegum viðfangsefnum.