Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1369828390.41

    Hagnýt enska 2
    ENSK1TF03
    3
    enska
    tjáning og málnotkun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í áfanganum verður lögð áhersla á þyngri og flóknari texta en í hagnýtri ensku 1. Þannig aukist orðaforði nemenda. Haldið verður áfram uppbyggingu grunnþekkingar í málfræði og málnotkun. Hvorutvegja skili sér í vönduðu rituðu og töluðu máli.
    ENSK1OM03 (Hagnýt enska 1)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • helstu grundvallarþáttum enska málkerfisins
    • einföldum samskiptum og tjáningu í rituðu og mæltu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér hagnýtra upplýsinga hvers konar
    • hlýða á og vinna með kunnuglegt efni
    • lesa og vinna með almennan texta
    • tjá sig munnlega og skriflega um eigin reynslu, tilfinningar og viðhorf
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja talað mál um kunnuglegt efni
    • skilja texta er inniheldur algengan orðaforða
    • halda uppi samræðum um almenn málefni
    • skrifa texta um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu
    • miðla eigin þekkingu, skoðunum, tilfinningum og reynslu
    Er tvíþætt: Í fyrsta lagi verður metið vinnuframlag nemdena, sem svo aftur ræðst af þátttöku þeirra og virkni í öllu starfi við áfangann. Í öðru lagi byggir matið á árangri nemandans hvað varðar þekkingu, leikni og hæfni að því er snýr að efnisinntaki áfangans. Þættirnir eru lagðir nokkuð að jöfnu.