Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1369921647.31

    Fræðilegur orðaforði og Bandaríkin - 1. áfangi
    ENSK2AM05
    7
    enska
    Fræðilegur orðaforði og Bandaríkin
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum byrjunaráfanga í ensku er áhersla lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast menningarheimi Norður-Ameríku, fjallað verður um bandarískt samfélag, venjur og siði. Í tengslum við það verður unnið með kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og ritunarverkefnum
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
    • bandarísku samfélagi
    • rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. inngangi með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreyttar gerðir texta
    • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
    • tjá sig skýrt og hnökralaust munnlega um málefni sem hann hefur kynnt sér
    • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
    • átta sig á helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
    • átta sig á ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
    • skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
    • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti