Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1369921782.98

    Fræðilegur orðaforði og Bretland - 2. áfangi
    ENSK2UK05
    6
    enska
    Fræðilegur orðaforði og Bretland
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áhersla er lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast menningarheimi Bretlands, fjallað verður um breskt samfélag, venjur og siði. Í tengslum við það verður unnið með breskt bókmenntaverk, kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi.
    ENSK2AM05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
    • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
    • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
    • rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
    • mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
    • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
    • greina og skilja málfarsmun á mismunandi málsvæðum
    • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
    • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
    • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
    • tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
    • skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
    • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti