Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1369928856.9

    Almenn heilsurækt
    ÍÞRÓ1HA01
    1
    íþróttir
    almenn líkams og heilsurækt, hreyfing, likamsræktarsalur
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í þessum áfanga er megináherslan á að nemendur fræðist og geti tileinkað sér almenna líkams- og heilsurækt. Þekki mikilvægi hreyfingar fyrir líkama og sál þ.e hvað gerist líffræðilega þegar þeir hreyfa sig.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig umgangast skal líkamsræktar sal
    • hvernig nemendur geti sem best náð árangri í heilsu og líkamsrækt
    • líkamsbeitingu við dagleg störf
    • grunnatriðum mataræðis og hollra lífsvenja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér einfaldra og hagnýtra upplýsinga um líkamsrækt
    • ráða og skilja helstu hugtök sem tengjast líkamsrækt á netinu
    • vinna í líkamsræktarsal án kennara eða þjálfara
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja æfingaprógram og vinna eftir því í líkasræktarsal
    • skipuleggja þjálfun fyrir sjálfa sig hvort heldur þol- eða styrktarþjálfun
    • rækta líkama sinn sjálfum sér til heilsubótar og ánægju
    Er tvíþætt. Í fyrsta lagi verður metið vinnuframlag nemenda, sem svo aftur ræðst af þátttöku þeirra og virkni í öllu starfi við áfangann. Í öðru lagi byggir matið á 6-8 vikna æfingarprógrammi sem nemendur þurfa að útbúa fyrir sjálfa sig svo hægt verði að vinna eftir því. Þá er og metin þekking, leikni og hæfni í því er snýr að efnisinntaki áfangans. Þættirnir eru lagðir að jöfnu