Markmið námsins er að hafa uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu og andlega og félagslega líðan. Kennslan byggist á því að styrkja sjálfsmynd nemanda og auka vellíðan hans með iðkun íþrótta. Jákvæð upplifun íþróttaiðkunar leggur grunn að heilsusamlegum lífsstíl nemenda. Markmiðin skal aðlaga að almennu skólastarfi. Stefnt er að því að nemendur fræðist um líkamsrækt, heilsuvernd og næringu og læri leiðir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju til æviloka.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gildi útivistar og hreyfingar fyrir heilsu og líðan
almennum búnaði til styttri gönguferða í nærumhverfi
verkefnum sem snúa að gerð eigin æfingaáætlunar
samtengingu næringar og hreyfingar við stjórnun líkamsþyngdar
öflun og framsetningu upplýsinga af internetinu og öðrum miðlum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
geta skipulagt og tekið þátt í gonguferðum í nærumhverfi
geta útbúið sig eftir aðstæðum hverju sinni
geta notað tæki til greiningar á líkamlegu álagi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stunda göngu sér til heilsubótar og ánægju
vinna eftir eigin æfingaáætlun með ákveðin markmið í huga
miðla þekkingu sinni um heilsusamleg áhrif hreyfingar til annara á jákvæðan hátt
vera meðvitaður um umhverfi sitt og læri að njóta þess
Þátttaka í kennskustundum gildir 70% af lokamanti áfangans. Virkni og framfarir nemenda gilda 30%.