Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1370001192.82

    Umsjón og aðhald
    UMSJ1RS01
    1
    Umsjón, persónuleg tengsl
    Persónuleg tengsl, aðhald, réttindi og skyldur nemenda
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum er verið að treysta persónuleg tengsl nemenda við kennara og náms-og starfsráðgjafa. Farið verður yfir réttindi og skyldur nemenda á framhaldsskólabraut og kynnt fyrir nemendum hvar vænta megi aðstoðar og úrlausna ef eitthvað kemur uppá. Sérstök áhersla á að byggja upp traust á milli nemenda og umsjónarkennara og nemanda og náms-og starfsráðgjafa.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að umsjónarkennari er trúnaðarmaður nemenda í skólanum auk náms-og starfsráðgjafa
    • að einkaviðtöl og hópfundir á milli nemenda og kennara/náms-og starfsráðgjafa treysta persónuleg tengsl
    • hvar hægt er að fá aðstoð innan skólans
    • réttindum og skyldum nemanda í framhaldsskóla
    • umsjón og aðhaldi skólans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig við umsjónarkennara/náms-og starfsráðgjafa
    • kunna skil á réttindum sínum og skyldum sem nemandi
    • mæta í skólann og skila verkefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir að hægt er að leita sér aðstoðar ef með þarf
    • skilja að umsjónarkennari og náms-og starfsráðgjafi eru til staðar fyrir nemendur
    • gera sér grein fyrir að góð ástundun er undirbúningur fyrir nám- og störf í framtíðinni
    • gera sér grein fyrir að aðhald og umsjón er til að styðja við ástundun og framfarir í námi
    Einstaklingsmiðað námsmat