Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1370258178.77

    Grunnaðgerðir algebru
    STÆR1AD03
    3
    stærðfræði
    algebra, brot, hlutfallareikningur
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Aðalmarkið áfangans er að auka skilning nemandans á undirstöðum reikniaðgerða og hvernig hægt er að nýta þá færni í daglegu lífi. Í áfanganum er lögð megináhersla á nemandi tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og þjálfist í samvinnu og rökhugsun.
    Þekkingarviðmið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • bókstafareikningi
    • jöfnum
    • almennum brotum/hlutfallareikningi
    • einföldum fjármálareikningi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leysa bókstafareikning í einfaldri mynd
    • leysa einfaldar jöfnur úr daglegu lífi
    • beita einföldum fjármálareikningi sem snýr að daglegu lífi og neyslu
    • vinna í hópi og gera grein fyrir niðurstöðum
    • beita hlutfallareikningi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér reikniaðferðir til að skilja og leysa verkefni daglegs lí
    • geta beitt stærðfræði við verkefni sem varða samskipti hans við samfélagið
    • hugsa rökrétt, frá einu skrefi til annars
    • sannreyna niðurstöður
    Námsmatið verður fyrst og fremst í formi verkefna og vinnuframlags. Vinna nemanda er metin jafn óðum (símat) og fá þeir einkunn fyrir öll verkefni. Vinna nemanda er metin út frá þremur meginþáttum. Í fyrsta lagi áræðanleiki lausna. Í öðru lagi frágangur og uppsetning. Í þriðja lagi ástundun, vinnuframlag í kennslustundum.