Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi iðkunar körfuknattleiks. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
megin leikreglum í körfuknattleik
grunnatriðum í leikfræði körfuknattleiks
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leika körfuknattleik sér til heilsubótar og ánægju
beita félagsfærni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins