Nemendur kynnast íslenskri leiklistarsögu sem og mikilvægum straumum og stefnum í vestrænni leikhúshefð 20.aldar. Tíðarandinn sem mismunandi verk og kenningar spruttu úr er skoðaður og einnig viðhorf og gildi þess tíma. Nemendur læra um nokkra þekktustu og áhrifamestu leikhúslistamenn og fræðimenn 20.aldar og hugmyndir þeirra um leikhús. Sérstök áhersla er á sjálfstæða heimildaöflun og ritgerðarskrif í áfanganum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nokkrum áhrifamiklum leikhúsfræðimönnum sem hafa haft afgerandi áhrif á þróun leiklistarsögunnar
hvernig tíðarandinn, viðhorf og gildi hafa áhrif á leikritaskrif viðkomandi höfunda / leikhúslistamanna
nokkrum mótandi þáttum og leiklista mönnum í íslenskri leiklistarsögu
mikilvægum nöfnum og staðreyndum í íslenski leikhússögu
hvernig afla á heimilda til að skrifa ritgerðir um leiklistarsögu
á hvaða grunni leiklist nútímans er byggð á og hvar áhrifa sögunnar gætir enn
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla sér heimilda um leiklist og leiklistarsögu
skrifa heimildarritgerð um leiklistartengd málefni
tjá sig í ræðu og riti um leiklistarsögu sem og leikskáld og leikhúslistamenn
greina hvar áhrif sögunnar er að finna í leikhúsi nútímans
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig um leiklistarsögu 20.aldar, mikilvæg leikskáld og leikhúsfræðimenn í ræðu og riti ...sem er metið með... verkefnum,prófi, munnlegri framsögn og ritgerð
tengja hugmyndir sínar um leikhús nútímans við mikilvægar staðreyndir leiklistarsögunnar ...sem er metið með... verkefnum, prófum, munnleg framsögn, ritgerð og umræðum
gera sér grein fyrir hvernig leiklistin hefur þróast í gegnum árin ...sem er metið með... verkefnum, prófum munnleg framsögn, ritgerð og umræðum
setja vestræna leikhússögu í samhengi við þá íslensku og hvernig leikhúsið speglar samfélag sitt á mismunandi tímapunktum
Námsmatið byggir fyrst og fremst á heimildaritgerð og lokaprófi. Einnig þurfa nemendur að skila smærri skriflegum verkefnum og fyrirlestrum. Nemendur halda líka dagbók.