Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1371122188.44

    Samsköpunaraðferðir
    LEIK3SK10
    1
    leiklist
    samsköpunaraðferðir
    Samþykkt af skóla
    3
    10
    Samsköpunaraðferðir í leiklist eru skoðaðar ítarlega og hugmyndafræði aðferðanna eru kynntar. Nemendur kynnast hugtakinu „opnun“ og þurfa að gera mörg verkefni þar sem sérstök áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu. Áhersla er lögð á að nemendahópurinn komist að sameiginlegri niðurstöðu um þau viðfangsefni sem lögð eru til grundvallar hinu skapandi starfi. Einnig er lögð áhersla sameiginlegt sköpunarferli og framlag hvers og eins í ferlinu. Áfanganum lýkur með sýningu.
    LEIK3SV05 OG LEIK3SS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu samsköpunaraðferðum í leikhúsi
    • fjölbreyttum leiðum til frumsköpunar í leikhúsi
    • hvernig samsköpunaraðferðir virka
    • mikilvægi þess að vinna uppbyggilega og faglega með öðrum
    • leiðum til þess að búa til sviðsverk sem speglar hugmyndir og sýn nemenda á samfélagið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna í hóp að sameiginlegu leiklistarverkefni
    • tjá sig á skýran og gagnrýninn hátt um gefið viðfangsefni í leiklist
    • skipuleggja samsköpunarverefni frá grunni
    • greina hvenær leikhús og atriði eru dýnamísk og full og hvernig þau spegla samfélag sitt á ólíkan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota helstu samsköpunaraðferðir við mótun á sviðlistaverki ...sem er metið með... verkefnum og lokasýningu
    • tjá skoðanir sínar á sviðslistum á ábyrgan, gagnrýninn og skýran hátt ...sem er metið með... skriflegum verkefnum og umræðum
    • greina hvað er hlaðið merkingu í leikhúsi og samfélaginu og hvað ekki ...sem er metið með... skriflegum verkefnum, gólfvinnu og umræðum
    • skapa sjálfstætt, dýnamískt, áhrifaríkt og vel ígrundað sviðslistaverk ...sem er metið með... skriflegum verkefnui, gólfvinnu og undirbúnu verkefni
    • meta eigið vinnuframlag ...sem er metið með... námssamningi og sjálfsmati
    • sýna ríkan skilning á hvernig leikhúsformið getur verið dýnamískt og listrænt ...sem er metið með... verkefnum
    • nýta sér leikhúsformið til að spegla samfélag sitt og setja það í nýtt samhengi sem metið er með skriflegum verkefnum, gólfvinnu, lokaverkefni og umræðum
    Námsmat fer fram með gólfvinnu og dagbókarfærslum nemenda, skriflegum verkefnum, virkni og lokaverkefni.