Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1371128173.95

    Sniðagerð
    FATA2SG05
    1
    fatahönnun
    gerð, sniða
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er unnið með grunnsnið út frá stöðluðum málum og þau notuð til að vinna flóknari sniðútfærslur í minni hlutföllum til yfirfærslu í stærri stærðir. Stærðarbreytingar (gradering) á sniðum eru kynntar. Flóknari saumtækniatriði eru unnin eftir vinnuleiðbeiningum bæði í máli og myndum. Lögð er áhersla á skipulagt vinnuferli og þjálfun í mátun sniða með saumi á prufuflíkum og leiðréttingu sniða eftir mátun. Kennd er sniðagerð fyrir teygjanleg efni og saumtækni á slíkum efnum. Kynnt er útfærsla á sniðum og saumur á undir- og sundfatnaði. Einnig er farið í gerð herra- og barnasniða. Búið er til snið af lífstykki og kenndur saumur og frágangur. Kennd er frjáls formun (drapering) sniða beint á gínu. Sérstök áhersla er lögð á vandvirkni við alla þætti áfangans.
    FATA1ST05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu grunnsniða
    • útfærslu flókinna sniða út frá grunnsniðum í minni hlutföllum
    • yfirfærslu sniða frá minni hlutföllum í fulla stærð
    • mátun flíka eftir vaxtarlagi og leiðréttingu sniða samkvæmt því
    • vinnuteikningum og vinnulýsingum í máli og myndum
    • flóknari saumtækniatriðum með prufusaumi
    • uppbyggingu sniða fyrir teygjanleg efni
    • saumtækni við saum úr teygjanlegum efnum
    • sniðagerð, saum og mátun á lífstykki
    • möguleikum draperingar beint á gínu við útfærslu óhefðbundinna sniða
    • graderingu sniða í stærðir
    • vinnuferlinu við að hanna flíkur
    • verkskipulagi, vandvirkni og sjálfstæðum vinnubrögðum
    • gerð sniða fyrir herra- og barnafatnað
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • teikna grunnsnið frá grunni í minni hlutföllum
    • útfæra flókin snið og nota til þess grunnsniðin
    • máta flíkur og leiðrétta sniðin eftir vaxtarlagi
    • lesa úr og vinna eftir vinnuteikningum í máli og myndum
    • sauma flóknari saumtækniatriði með prufusaumi
    • vinna snið fyrir teygjanleg efni og sauma úr teygjanlegum efnum
    • vinna snið af lífstykki og sauma
    • drapera óhefðbundin snið af flíkum beint á gínur
    • setja snið í stærri og minni stærðir (gradering)
    • gera vinnuferli hönnunar skil í vinnuskýrslum bæði í texta og vinnuteikningum
    • skipuleggja vinnuferli og vanda vinnubrögð
    • notfæra sér grunnsnið fyrir herrafatnað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útfæra flóknari snið eftir eigin hugmyndum ...sem er metið með... verkefnum
    • færa breytingar yfir á sniðin sem fram koma við mátun á prufuflíkum ...sem er metið með... verkefnum
    • lesa úr og nota vinnuleiðbeiningar í máli og myndum ...sem er metið með... verkefnum
    • geta saumað flóknari saumtækniatriði ...sem er metið með... verkefnum
    • nota draperingu við útfærslu óhefðbundinna sniða ...sem er metið með... verkefnum
    • setja snið í nokkrar stærðir ...sem er metið með... verkefnum
    • skipuleggja vinnuferli við hönnun á flíkum ...sem er metið með... verkefnum
    • ganga frá verkefnum í ferilmöppu ...sem er metið með... verkefnum
    • vanda alla þætti ferilsins ...sem er metið með... verkefnum
    Mat lagt á verklagni, áhuga og framfarir, metnað og vandvirkni við alla þætti vinnu ferlisins