Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1371129204.64

    Saga textíls
    HÖNS3ST05
    1
    hönnunarsaga
    saga, textíls
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Megináhersla er lögð á að fylgja eftir þróun í fata- og textílsögu fram til dagsins í dag. Sérstaklega er tekin fyrir íslensk arfleifð og hvernig staðið er að varðveislu og samtímasöfnun á fatnaði og textíl. Þá er tekið fyrir hvernig fatnaður talar til okkar hvað varðar stéttarstöðu, lífsstíl, hóptilfinningu, athafnir og hefðir. Hvenær og hvernig tískan varð að markaðsvöru og hvernig unglingatískan mótaðist. Einnig er lögð áhersla á framleiðslu- og vinnuumhverfi fata- og textílgreinarinnar í fortíð, nútíð og framtíð. Nemendur vinna teikningar af fatnaði frá eldri tímabilum auk þess að vinna með eigin hugmyndir með innblástur frá ólíkum tímabilum . Nemendur nýta fjölbreyttar upplýsingaleiðir við verkefnavinnu í tengslum við innihald áfangans s.s. netið, fagbækur og fagblöð ásamt vettvangsheimsóknum, fyrirlestrum og viðtölum.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu og útliti fatnaðar og fylgihluta frá ýmsum stíltímabilum
    • hvernig staðið er að sögu, varðveislu og samtímasöfnun á fatnaði og textíl
    • þróun íslenskrar fatagerðar og fatahönnunar
    • sögu og hlutverki textíls í híbýlum
    • hvernig fatnaður mótar og hefur áhrif á athafnir og hefðir
    • iðnframleiðslu og sérhæfðari hönnun á fatnaði
    • hvernig tískuheimurinn starfar
    • straumum og stefnum í fata- og textílhönnuðum samtímans
    • helstu fata- og textílhönnuði á 20. og 21. öld og áhrif þeirra á samtímann
    • viðskipta-, vinnu- og fagumhverfi greinarinnar, fyrirtæki og stofnanir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina strauma og stefnur í fatnaði og textíl
    • greina sögu og hlutverk textíls í híbýlahönnun og skreytingum í fortíð og nútíð
    • nýta sér safna- og sýningarumhverfi greinarinnar
    • greina mismunandi fatastíla og tegundir fatnaðar og hinar óskráðu reglur um textíl
    • greina muninn á sérsaumuðum fatnaði, hátískuhönnun, sérhæfðri fjöldaframleiðslu og módelhönnun
    • teikna fatnað og eigin hugmyndir með fyrirmyndum af fatnaði ýmissa stíltímabila
    • geta nýtt sér ólíka miðla við öflun upplýsinga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta gert samanburð á þróun fatnaðar og textíl hér á landi og erlendis ...sem er metið með... verkefnum
    • njóta safna- og sýningarumhverfis greinarinnar ...sem er metið með... verkefnum og munnlegri framsögn
    • nýta sér sögulegar heimildir um útlit fatnaðar og fylgihluta fyrir nýjar hugmyndir og lausnir með teiknivinnu ...sem er metið með... verkefnum
    Metin er framsetning og kynning á verkefnum yfir önnina. Teiknivinna frá stíltímabilum. Ritgerð um stíltímabil. Úrvinnsla á viðtölum við fata- og textílhönnuði og vettvangsheimsóknum. Umsagnir vegna sýninga og fyrirlestra.