Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1379597730.02

    Sjónarhorn félagsvísinda
    FÉLV2IF05(11)
    4
    félagsvísindi
    inngangur að félagsvísindum
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    11
    Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsvísinda. Fjallað er um samfélagið í ljósi þeirra áhrifa sem það hefur á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á samfélögum nær og fjær svo að þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegri umræðu og geti myndað sér skoðanir á upplýstan og gagnrýninn hátt. Nemendur kynna sér félagslega þætti sem stýra hugsun og athöfnum einstaklingsins og stefnt er að því að nemendur öðlist skilning á skipulagi eigin samfélags og annarra. Meginmarkmið áfangans er að nemendur átti sig á því hvernig samfélagið hefur áhrif á þá og hvernig þeir geta haft áhrif á samfélagið.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengustu hugtökum félagsvísinda
    • helstu áhrifavöldum í félagsmótun, s.s. fjölskyldu, skólum, félögum og fjölmiðlum
    • mikilvægustu félagslegu festum ólíkra samfélaga og tilgangi þeirra
    • helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar, s.s. valdi,lýðræði og þrískiptingu ríkisvaldsins
    • íslenskum vinnumarkaði, s.s. atvinnuþátttöku, launajafnrétti og hagsmunasamtökum
    • samstarfi þjóða á alþjóðavettvangi, s.s. innan Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og á sviði alþjóðlegra viðskipta
    • réttindum og skyldum sínum gagnvart samfélaginu
    • kynbundnu ofbeldi, hvernig það birtist í nánum samböndum og hvert megi leita eftir aðstoð vegna þess.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita algengustu hugtökum félagsvísinda á skýran og skilmerkilegan hátt
    • lesa um og skilja áhrif félagslegra festa í samfélaginu
    • greina stöðu sína innan samfélagsins og þau áhrif sem einstaklingar geta haft í samfélaginu
    • leggja mat á heimildir og upplýsingar í félagsvísindum
    • setja fram niðurstöður sínar bæði munnlega og skriflega.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera grein fyrir einkennum og þróun ólíkra samfélaga ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum og/eða prófum
    • gera grein fyrir samspili þekkingar, umburðarlyndis og fordóma ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum og/eða prófum
    • tjá sig skipulega og gagnrýnið um samfélagsleg álitamál ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum og/eða prófum
    • beita öguðum vinnubrögðum, axla ábyrgð á eigin námi og vinna í samvinnu við aðra ...sem er metið með... ýmiss konar símatsverkefnum yfir önnina.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggir á því að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta eru ýmiss konar verkefni (bæði munnleg og skrifleg, einstaklings- og hópverkefni), ritgerð og próf.