Í fyrri hluta áfangans er megináherslan lögð á matreiðslu léttra rétta (skyndibita). Þar má t. d. nefna pylsur, pizzur, hamborgara, smurbrauð, burrito og pítur. Í tengslum við matreiðsluna þurfa nemendur að leita upplýsinga á Netinu um sögu þessara rétta og vinna stutt verkefni samfara því. Nemendur þurfa sjálfir, undir handleiðslu kennara, með hollustu og hagkvæmni í huga, að annast innkaup á hráefni og laga uppskriftir að vöruúrvali. Í síðari hluta áfangans er fjallað um matarmenningu þriggja Evrópuland, þ. e. Danmerkur, Frakklands og Ítalíu. Lögð áhersla á að nemendur kynnist menningu þessara landa í gegnum matargerðina, m. a. í gegnum kvikmyndir frá viðkomandi löndum. Ætlast er til að nemendur vinni stutt verkefni um löndin sem til umfjöllunar eru hverju sinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu og neyslu valdra skyndibitarétta
á ólíkum siðum við fæðuöflun og matargerð
tengslum valdra samfélaga við matarmenningu sína
mikilvægi hollrar næringar fyrir heilbrigðan líkama
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
matreiða létta rétti
vinna með ýmiss konar gögn við matreiðslu, þ.e. matreiðslubækur og hvers kyns áhöld og tæki
greina á milli ólíkra gerða matseldar, s.s. suðu, steikingar, ofnbökunar o.s.frv.
ástunda hagkvæm og umhverfisvæn innkaup til heimilis
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla almennri þekkingu sinni í umræðum og stuttum kynningum
miðla leikni sinni við matseld
efla læsi sitt í víðum skilningi
auki færni sína til tjáningar á eigin skoðunum og samskipta við annað fólk
meta heimilisinnkaup út frá sjónarmiðum sjálfbærni og hagkvæmni