Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1379691632.43

    Ljósgeislafræði, bylgjueðli ljóss, hiti og kvikfræði, varmi, snúningshreyfing og sjálfvalið eðlisfræðiefni
    EÐLI3HS05
    10
    eðlisfræði
    bylgjueðli ljóss, hiti og kvikfræði, ljósgeislafræði, snúningshreyfing og sjálfvalið eðlisfræðiefni, varmi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr neðangreindum þáttum eðlisfræðinnar. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við bóklegt og verklegt nám í þessum þáttum. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Stefnt er að því að fara með hópinn í heimsókn í háskóla og/eða stofnun þar sem notast er við raungreinaþekkingu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: speglun og brot ljósgeisla, myndir í speglum og linsum, lögmál Snells, alspeglun og ljósþráðatækni, bylgjueðli ljóss, hiti og kvikfræði, varmi, snúningshreyfing og sjálfvalið eðlisfræðiefni. Síðasti efnisþátturinn, sjálfvalið eðlisfræðiefni, er útfærður þannig að nemendur vinna í litlum hópum að því að kynna sér afmarkað eðlisfræðiefni og útbúa fyrirlestra um það sem þeir flytja fyrir bekkjarfélaga sína.
    EÐLI3AH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum sem notuð eru til að lýsa ljósgeislafræði, bylgjueðli ljóss, hita og kvikfræði, varmafræði og snúningshreyfingu og fyrirbærum tengdum þeim efnisþáttum
    • helstu lögmálum sem tengjast ofangreindum efnisþáttum svo sem endurvarpslögmálinu, lögmáli Snells, viðlagningarlögmáli bylgna, lögmáli Huygens , lögmálum Boyls, Charles og Gay-Lussacs, (kjör)gaslögmálinu (ástandsjöfnu gass), lögmálinu um varðveislu orkunnar, 2. lögmáli Newtons fyrir snúningshreyfingu og lögmálinu um varðveislu hverfiþunga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
    • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
    • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða út frá gefnum forsendum
    • vinna með hin ýmsu mælitæki við að framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra, m.a. með tölvuforritum eins og Word og Excel
    • setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
    Lokapróf og vinnueinkunn