Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1379944779.97

    Vinnustaðanám
    VINS1FY05
    None
    vinnustaðanám
    Fyrri áfangi, atvinnulíf í nærsamfélagi
    í vinnslu
    1
    5
    Í áfanganum er fjallað um meginflokkun atvinnulífs í frumvinnslu-, úrvinnslu- og þjónustugreinar og þau réttindi og skyldur sem tengjast þátttöku einstaklingsins í atvinnulífinu almennt. Lögð er sérstök áhersla á að nemendur kynnist atvinnulífi í nærumhverfi sínu af eigin raun með markvissum heimsóknum á vinnustaði. Í heimsóknum sínum er nemendum ætlað að afla upplýsinga um sögu og helstu viðfangsefni vinnustaðarins ásamt því að kynna sér þá menntun sem starfsfólk í ólíkum störfum þarf að hafa. Nemendur fá auk þess tækifæri til að vera virkir þátttakendur á þeim vinnustöðum sem þeir heimsækja, allt eftir aðstæðum á hverjum stað. Þá er jafnframt lögð áhersla á að nemendur þjálfist í að setja fram niðurstöður sínar á góðu íslensku máli og hagnýti möguleika upplýsingatækninnar, s.s. með því að útbúa glærukynningu, veggspjald, stuttmynd, bækling eða vefsíðu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skiptingu vinnumarkaðarins á Íslandi í frumvinnslu-, úrvinnslu- og þjónustugreinar
    • réttindum sínum og skyldum sem launþega
    • helstu skyldum og réttindum atvinnurekenda og stéttarfélaga
    • sögu, hlutverki og helstu verkefnum sem unnin eru á þeim vinnustöðum sem nemandinn heimsækir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna einföld verkefni undir leiðsögn á þeim vinnustöðum sem hann heimsækir
    • nota tölvuforrit sem koma að gagni við framsetningu á ýmsum verkefnum sem unnin eru í áfanganum
    • efla læsi sitt í víðum skilningi, þ.e. treysta kunnáttu í íslensku, auka leshraða sinn, lesa fjölbreytta texta sér til gagns og ánægju, auka færni sína til tjáningar á eigin skoðunum og samskipta við annað fólk og efla læsi á ýmiss konar upplýsingar, bæði í texta- og talnaformi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta flokkað vinnustaði í nærsamfélaginu í frumvinnslu-, úrvinnslu- og þjónustugreinar
    • gera sér grein fyrir mikilvægi hinna ólíku vinnustaða sem heimsóttir eru fyrir nærsamfélagið
    • gera sér grein fyrir mikilvægi þess að eiga gott samstarf og samskipti við kennara og samnemendur í áfanganum
    • gera sér grein fyrir mikilvægi þess að eiga gott samstarf við starfsfólk á þeim vinnustöðum sem heimsóttir eru
    • geta aflað og sett fram upplýsingar á vönduðu máli um þá menntun sem starfsfólk á vinnustaðnum þarf að hafa til þess að geta unnið tiltekin störf
    • geta sett fram upplýsingar á vönduðu máli um og kynnt fyrir samnemendum sínum sögu, hlutverk og helstu verkefni sem unnin eru á þeim vinnustöðum sem heimsóttir eru
    Nemendur safna saman í verkefnamöppu öllum gögnum/upplýsingum sem þeir afla og verkefnum sem þeir vinna í áfanganum, jafnt í skóla sem og í vinnustaðaheimsóknum. Þá þurfa nemendur einnig að standast þær væntingar sem gerðar eru til þeirra um frammistöðu á þeim vinnustöðum sem þeir heimsækja.