Í áfanganum er fjallað um meginflokkun atvinnulífs í frumvinnslu-, úrvinnslu- og þjónustugreinar og þau réttindi og skyldur sem tengjast þátttöku einstaklingsins í atvinnulífinu almennt. Lögð er sérstök áhersla á að nemendur kynnist atvinnulífi í nærumhverfi sínu af eigin raun með markvissum heimsóknum á vinnustaði. Í heimsóknum sínum er nemendum ætlað að afla upplýsinga um sögu og helstu viðfangsefni vinnustaðarins ásamt því að kynna sér þá menntun sem starfsfólk í ólíkum störfum þarf að hafa. Nemendur fá auk þess tækifæri til að vera virkir þátttakendur á þeim vinnustöðum sem þeir heimsækja, allt eftir aðstæðum á hverjum stað. Þá er jafnframt lögð áhersla á að nemendur þjálfist í að setja fram niðurstöður sínar á góðu íslensku máli og hagnýti möguleika upplýsingatækninnar, s.s. með því að útbúa glærukynningu, veggspjald, stuttmynd, bækling eða vefsíðu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skiptingu vinnumarkaðarins á Íslandi í frumvinnslu-, úrvinnslu- og þjónustugreinar
réttindum sínum og skyldum sem launþega
helstu skyldum og réttindum atvinnurekenda og stéttarfélaga
sögu, hlutverki og helstu verkefnum sem unnin eru á þeim vinnustöðum sem nemandinn heimsækir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna einföld verkefni undir leiðsögn á þeim vinnustöðum sem hann heimsækir
nota tölvuforrit sem koma að gagni við framsetningu á ýmsum verkefnum sem unnin eru í áfanganum
efla læsi sitt í víðum skilningi, þ.e. treysta kunnáttu í íslensku, auka leshraða sinn, lesa fjölbreytta texta sér til gagns og ánægju, auka færni sína til tjáningar á eigin skoðunum og samskipta við annað fólk og efla læsi á ýmiss konar upplýsingar, bæði í texta- og talnaformi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta flokkað vinnustaði í nærsamfélaginu í frumvinnslu-, úrvinnslu- og þjónustugreinar
gera sér grein fyrir mikilvægi hinna ólíku vinnustaða sem heimsóttir eru fyrir nærsamfélagið
gera sér grein fyrir mikilvægi þess að eiga gott samstarf og samskipti við kennara og samnemendur í áfanganum
gera sér grein fyrir mikilvægi þess að eiga gott samstarf við starfsfólk á þeim vinnustöðum sem heimsóttir eru
geta aflað og sett fram upplýsingar á vönduðu máli um þá menntun sem starfsfólk á vinnustaðnum þarf að hafa til þess að geta unnið tiltekin störf
geta sett fram upplýsingar á vönduðu máli um og kynnt fyrir samnemendum sínum sögu, hlutverk og helstu verkefni sem unnin eru á þeim vinnustöðum sem heimsóttir eru
Nemendur safna saman í verkefnamöppu öllum gögnum/upplýsingum sem þeir afla og verkefnum sem þeir vinna í áfanganum, jafnt í skóla sem og í vinnustaðaheimsóknum. Þá þurfa nemendur einnig að standast þær væntingar sem gerðar eru til þeirra um frammistöðu á þeim vinnustöðum sem þeir heimsækja.