Í áfanganum er lögð megináhersla á endurvinnslu og endurnýtingu á öllum þeim hlutum sem nemendur vinna með. Samstarfs verður leitað við efnamóttöku sorphirðufyrirtækja um að fá nytjavörur sem þangað berast og endurnýta og/eða endurvinna þær. Áhersla er lögð á að nemendur yfirfari tæki og hluti sem þeir fá í hendur. Þau tæki og hlutir sem ekki er hægt að nota áfram eru tekin í sundur og flokkuð til endurvinnslu. Flokkunin verður í samræmi við reglur sem gilda um endurvinnslu. Í lok áfangans er stefnt að því að nemendur stofni fyrirtæki þar sem nýtilegar vörur eru seldar.
ENEN1EE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi endurvinnslu sem umhverfismáls
hvernig ýmis tæki og hlutir virka
hvaða verðmæti eru oft fólgin í gömlum hlutum/tækjum
helstu grundvallaratriðum við rekstur nytjamarkaðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka hluti og tæki í sundur og setja saman aftur
flokka hluti eftir tegundum
meta tæki og hluti út frá notagildi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lagfæra ýmiss konar hluti og tæki
leggja mat á notagildi ýmiss konar hluta og tækja
stofna fyrirtæki (nytjamarkað) þar sem nýtilegar vörur eru seldar