Í áfanganum er gerðar kröfur til sjálfstæðra vinnubragða. Nemendur þjálfast í að lesa margvíslega texta og vinna með orðabók þar sem það á við. Áhersla er lögð á talþjálfun og hlustunaræfingar. Leitast er við að byggja upp og auka við hagnýtan orðaforða með margvíslegum æfingum á öllum færnisviðum. Enskt talmál er æft, m.a. í tengslum við les- og hlustunarefni. Í skriflega þættinum er gerð krafa um agaða setningaskipan, nákvæman orðaforða og skipulagða framsetningu.
ENSK1MR04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tíðum sagna
eignarfalli nafnorða
myndun sambandssagna
notkun forsetninga
o.fl. málfræðiatriðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér hjálpargögn við ritun, s.s. orðabækur og leiðréttingarforrit
tala skiljanlega ensku með jöfnum og eðlilegum hraða
lesa margvíslega texta, .s.s bókmenntatexta, texta í dagblöðum og tímaritum, efni á Netinu auk fræðilegra texta um sérhæfð viðfangsefni
skilja einfalt ótextað sjónvarps-, mynd- margmiðlunar- eða útvarpsefni, t.d. fréttir, þar sem talað er skýrt og án sterks hreims.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í samræðum á ensku
taka virkan þátt í hópvinnu og axla ábyrgð á þeirri vinnu sem honum er ætluð innan hópsins