Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1385033677.06

    Tölvustýrðar vélar
    TÆKN3TV05
    1
    Tæknibúnaður
    Notkun tölvustýrðra véla
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum læra nemendur grunnatriði í virkni og notkun tölvustýrða véla með áherslu á sambandið milli tölvuteikninga, færsluskipana og loks framleiðslu. Fjallað er um helstu hugtök sem tengjast notkun tölva í framleiðsluumhverfi, stafræna stýringu og forritun CNC véla. Nemendur öðlast einnig þekkingu í öryggismálum varðandi umgengni við tölvustýrðar vélar.
    TÖLI2IV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tölvustýrðum vélum með 3 til 4 ásum
    • grunnþáttum í virkni CNC véla
    • X, Y og Z ásum
    • viðmóti mismunandi forrita
    • notkun undirforrita sem þátta í aðalforriti
    • öryggisreglum við umgengni tölvustýrðar vélar
    • á núllpunkti og uppstillingu smíðahluta í vél með tilliti til hans
    • öllum þáttum fræsiferils og samhengi þeirra
    • samhengi verkfæra- og efnisvals
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að vista og geyma gögn í tölvuumhverfinu
    • velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnaðar með tilliti til mismunandi verkefna
    • prenta út verkefni á CNC stýrðri vél
    • leiðrétta, bæta við og laga línur í forriti
    • setja upp verkfæri á tölvustýrðar vélar
    • umgangast og starfa við tölvustýrða vél á öruggan hátt
    • skipuleggja og framkvæma eigin hugmyndir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta notað CNC tækni við úrlausn verkefna ...sem er metið með... verkefnaskilum
    • kanna hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál ...sem er metið með... verkefnaskilum og prófi
    • greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til úrbóta ...sem er metið með... verkefnavinnu, prófi, sjálfsmati og jafningjamati
    Símat byggt á verkefnaskilum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.