Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1386841813.73

    Framkoma og tjáning fyrir verslunarþjóna
    FRTJ1VÞ03
    1
    Framkoma og tjáning fyrir verslunarþjóna
    Verslunarþjónn
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í framsögn og framkomu. Sérstök áhersla er lögð á talað mál og að nemendur geti tjáð sig á lipran og auðskilinn máta. Fjallað verður um einkenni daglegs máls, háttvísi og hógværð í framkomu og hvernig beri að huga að persónulegu útliti við afgreiðslustörf í matvöruverslun. Farið verður í hlutverkaleiki (nokkurs konar hópeflisæfingar) þar sem nemendur þjálfast í að vera í hlutverkum viðskiptavina og afgreiðslufólks.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mannlegum samskiptum og hvernig brugðist er við ólíkum aðstæðum sem upp geta komið
    • mikilvægi þess að haga orðum sínum og gerðum þannig að ekki valdi særindum eða reiði
    • mikilvægi þess að taka aðfinnslum af háttvísi og leiða slík mál til lykta á farsælan hátt
    • þörfum viðskiptavinarins án þess þó að vera uppáþrengjandi
    • mikilvægi þess að sýna eðlilega gleði í starfi sínu án þess að fara yfir kurteisismörk
    • mikilvægi þess að vera alltaf meðvitaður um að hann/hún sé í þjónustuhlutverki þar sem viðmót, útlit og háttvísi skiptir máli
    • mikilvægi þes að haga persónulega útliti og hreinlæti í samræmi við kröfur
    • mikilvægi þess að sýna kurteisi í framkomu
    • mikilvægi þess aðhaga persónulega útliti og hreinlæti í samræmi við kröfur Heilbrigðiseftirlits og MAST
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna lipurð í samræðum og útskýringum við viðskiptavini og annað starfsfólk
    • sýna almenna kurteisi og þjónustulund í samskiptum við viðskiptavini
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    Verkefni þar sem nemandinn æfist í framsögn og líkamstjáningu. Skrifleg einstaklingsverkefni og æfingar þar sem líkt er eftir raunverulegum aðstæðum. Framkoma og virkni í kennslustundum.