Í áfanganum er fyrst og fremst fjallað um kjöt- og fiskiðnað á Íslandi. Farið er í kælingu, frystingu, geymsluaðferðir og umbúðir fyrir hinar ýmsu kjöttegundir. Nemendur læra um heilbrigðis- og gæðamat á kjöti og kjötvörum. Fjallað er um efnafræði kjötsins og vatnsbindigeta þess. Fjallað er um meyrnun og meyrnunartíma og meyrnunaraðferðir. Einnig öðlast nemendur grunnþekkingu á uppruna, meðhöndlun vörunnar og um bestu geymsluskilyrði fyrir ávexti, grænmeti, mjólkurmat, osta, brauð o.fl.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hráefnisfræði varðandi kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, brauð og mjólkurmat,
meðhöndlun hráefnis miðað við mismunandi aðstæður viðskiptavinar,
umgengni um matvæli í kæli og frystiborðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja, meðhöndla og skila frá sér hráefni af fagþekkingu í samræmi við óskir viðskiptavina,
veita viðskiptavinum faglegar upplýsingar eftir aðstæðum hverju sinni og í samræmi við óskir þeirra,
spyrja viðskiptavininn um hvað hentar hverju sinni, taka frumkvæði og leiðbeina um ólíka möguleika á samsetningu matvæla.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ráðleggja um ólíka samsetningu hráefnis og um meðhöndlun fyrir eldun s.s. kryddun eða marineringu, meyrnun og geymsluaðferðir,
taka sjálfstæða ákvörðun um hráefnisval, meðhöndlun, geymsluskilyrði og framreiðslu með hliðsjón af mismunandi kröfum viðskiptavina.
Verkefni unnin á önninni ýmist hópverkefni eða einstaklingsverkefni.
Ein ritgerð og kynning nemenda á einstökum viðfangsefnum.
Áfanganum lýkur með lokaprófi.