Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1386844611.71

    Iðnreikningur fyrir verlsunarþjóna
    IÐNR2VÞ04
    1
    Iðreikningur
    Iðnreikningur fyrir verslunarþjóna
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Í áfanganum er fjallað um hlutareikning með breytiþáttum og ýmsa þætti vaxtareiknings. Unnið er með hagnýt dæmi úr faginu svo sem launaútreikninga, vinnuáætlanir, kostnaðarútreikninga, uppgjör á virðisaukaskatti og fleira. Fjallað er um verðmyndun vöru og útreikninga á útsöluverði. Nemendur fá þjálfun í notkun hlutareiknings og breytiþátta, t.d. þegar unnið er með uppskriftir.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi verðlagningar, rýrnunar og nýtingar hráefnisins fyrir viðskiptavininn,
    • áhrifum rýrnunar og úrvinnslu hráefnis á rekstrarforsendur fyrirtækja og skilji mikilvægi þess að fyrirtækið geti hámarkað söluverð hverju sinni,
    • grundvallaratriðum verðmyndunnar og útreikninga þar að lútandi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • umreikna magn í uppskriftum (stækka þær eða minnka) miðað við breytilegar forsendur viðskiptavina,
    • uppreikna kostnaðarverð á hráefni til lækkunar eða hækkunar í samræmi við magn þess,
    • nota töflureikni við gerð áætlana og við útreikninga og breytingar á uppskriftum,
    • kostnaðargreina uppskriftir með ólíkum hráefnum og mismunandi samsetningu hráefna.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leiðbeina, ráðleggja og sannfæra viðskiptavin af fagþekkingu um hvaða hráefni henti hverju sinni með tilliti til rýrnunar,
    • ráðleggja og reikna út það magn sem hentar miðað við ólíkar þarfir viðskiptavina m.a. eftir fjölda þeirra, aldri og aðstæðum,
    • reikna út og áætla helstu þætti vörukostnaðar s.s. kostnaðarverð, álagningu, virðisaukaskatt og söluverð.
    Fjögur 10% verkefni úr heftinu gilda sem 40% af lokaeinkunn. Eitt töflureiknisverkefni frá kennara á síðari hluta annar gildir 10% af lokaeinkunn. Áfanganum lýkur með 50% lokaprófi.