Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1386844855.99

    Matreiðsla fyrir verslunarþjóna
    MATR2VÞ07
    1
    matreiðsla
    Matreiðsla fyrir verslunarþjóna
    Samþykkt af skóla
    2
    7
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir matreiðslu sem faggrein. Áhersla er lögð á sígildar undirstöðuaðferðir s.s. skurð og meðferð á: grænmeti, ávöxtum, fiski, kjöti, kornvöru og baunum. Nemendur læra að nota allar helstu matreiðsluaðferðir og soð, súpu og sósugerð. Einnig verður fjallað um helstu bakstursaðferðir og hráefni til baksturs.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að velja gott hráefni til matargerðar og baksturs,
    • helstu matreiðsluaðferðum,
    • fjölbreytilegu hráefni til matargerðar,
    • þeim matvörum sem verið er að bjóða viðskiptavinum,
    • heppilegri samsetningu við val á matvörum,
    • varðveislu ferskleika og næringarefna matvæla,
    • umgengni um matvæla í kæli og frystiborðum,
    • þeirri ábyrgð sem felst í því að vinna með fjölbreyttar matvörur,
    • þeirri ábyrgð felst í því að vera neytandi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • matreiða og baka úr öllu algengu hráefni og beita öllum helstu matreiðslu og bakstursaðferðum,
    • velja viðeigandi matreiðslu- eða bakstursaðferð og breyta þeim,
    • velja viðeigandi hráefni fyrir tiltekið verkefni og áætla magn,
    • leiðabeina um val á hráefni í takt við þarfir viðskiptavina,
    • meðhöndla matvörur af faglegu öryggi á afgreiðslustað,
    • afla sér upplýsinga um nýjungar í matreiðslu og bakstri,
    • áætla hráefnismagn fyrir tiltekið verkefni og velja saman grunnhráefni og viðeigandi meðlæti.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meðhöndla allt algengt hráefni til matargerðar,
    • útbúa fjölbreytta rétti og ráðleggja viðskiptavinum um val á hráefni til matargerðar,
    Verkefni unnin á önninni ýmist hópverkefni eða einstaklingsverkefni. Áfanganum lýkur með verklegu lokaprófi.