Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir næringarfræðina sem fræðigrein og fái þannig innsýn í hlutverk og gildi næringarefna fæðunnar. Sérstök áhersla er lögð á orkuefnin, virkni vítamína og steinefna, aukaefni í mat og óþolsvalda. Einnig verður fjallað um mataræði innan mismunandi trúarbragða, svo nemendur geti nýtt sér þá þekkingu í verkefnavinnu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim matvörum sem verið er að bjóða viðskiptavinum,
þeim næringarefnum sem einkenna helstu fæðuflokka,
fæðuvali innan mismunandi trúarbragða,
þeim flokkum aukaefna sem notuð eru í matvælum,
samsetningu hráefnis við val á matvörum,
varðveislu ferskleika og næringarefna matvæla,
umgengni um matvæli kæli og frystiborðum,
mikilvægi þess að velja hráefni í samræmi við það sem viðskiptavinurinn þarfnast,
meðhöndlun matvöru af faglegu öryggi á afgreiðslustað,
þeirri ábyrgð sem fylgir því að meðhöndla fjölbreyttar matvörur,
þeirri ábyrgð sem fólgin er í því að vera seljandi matvöru.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
veita viðskiptavinum réttar upplýsingar um næringargildi og hollustu matvara,
gefa réttar upplýsingar um virkni efna í fæðutegundum,
greina mismun ólíkara fæðutegunda og innihaldsefna í matvörum,
afla sér upplýsing um nýjungar á matvælamarkaði, útskýra innihald samsettra og tilbúinna matvara og um notagildi ólíkra fæðutegund við mismunandi tækifæri,
reikna út næringargildi ólíkra fæðutegunda og tilbúinna rétta sem seldir eru í verslunum,
setja upp viðmiðunarmatseðla með hliðsjón af mismunandi þörfum viðskiptavina,
gefa ráð varðandi fæðu með hliðsjón af þörfum mismunandi trúarbragða,
koma upplýsingum um matvöru á framfæri á einfaldan og augljósan máta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera í senn leiðbeinandi og þjónandi í matvöruverslunum við afgreiðslu matvara,
kynna sér nýjungar í næringarfæði á hverjum tíma,
miðla þekkingu sinni til viðskiptavina,
Verkefni unnin á önninni ýmist hópverkefni eða einstaklingsverkefni.
Ein ritgerð og kynning nemenda á einstökum viðfangsefnum.
Áfanganum lýkur með lokaprófi.