Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1386860292.97

    Líkamsþjálfun-Tækni
    SVIÐ1LT05
    1
    sviðslistir
    Líkamsþjálfun og tækni
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn miðar að því að nemendur öðlist innsýn og þjálfun þegar kemur að líkamanum sem miðli í sviðslistum. Reist er undirstaða undir líkamlega tækniþekkingu nemandans í gegnum dans, radd og leikþjálfun. Áfanganum er skipt upp í þrjá hluta, dans, rödd og leiktúlkun, umsjón er í höndum fagfólks í hverri grein. Í danshlutanum er unnið með rými, rythma, dýnamík og form. Þeir möguleikarnir sem líkaminn bíður uppá eru rannsakaðir og unnið með þá mismunandi krafta sem liggja að baki hreyfingu og takttegunda. Byggt er á kenningum Ruth Zaphora, Aktion Theatre, með notkun orða og hljóða og tengingu við dans leikhús. Í raddhlutanum er fjallað um hljóðmótun og grunnþætti heilbrigðrar raddbeitingar. Kenndar eru aðferðir og æfingar til að ná valdi á öndun, tónmótun og dýnamík. Fjallað er um aðferðir við að vinna texta til flutnings, allt frá textaskilningi til framsagnar. Einnig verður unnið með röddina í gegnum tónlist. Byggt er á Complete Vocal Technique aðferðinni. Í leikhlutanum verður lögð áhersla á að kynna þau grunnhugtökum sem notuð eru í vinnu leikarans við persónusköpun. Lögð er áhersla á áræðni, samvinnu og styrkleika hvers og eins nemanda sem leikara. Byggt er á helstu kenningum vestrænnar leiklistar s.s. kerfi líkamlegra gjörða - Stanislavsky.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Þeim hugtökum í dansi er varða grunnhreyfiform s.s. göngu, hlaupi, valhoppi og fjöðrun,
    • krafti og gæðum hreyfinga út frá formi og dýnamík,
    • líkama mannsins sem miðli í dansleikhúsi,
    • virkni raddarinnar sem líffæris og hljóðfæris listamannsins,
    • helstu þáttum heilbrigðrar raddbeitingar,
    • vinnu með bundinn og óbundinn texta á leiksviði,
    • mikilvægi grunntækni í starfi leikarans sem skapandi listamanns,
    • samspili tækni og listrænnar útfærslu á sviði út frá sjónarhóli leikarans,
    • verklagi leikarans út frá handritavinnu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita líkamanum á markvissan hátt í rými útfrá takti, formi og dýnamík,
    • að nota nótnaskrift grunnhreyfiforma,
    • beita tjámáli dansins í sviðslistaumhverfi,
    • nota röddina á heilbrigðan hátt og taka ábyrgð á eigin raddbeitingu,
    • greina bundinn og óbundinn texta til túlkunar og flutnings,
    • setja í samhengi rödd, líkama og texta til túlkunar leikverka,
    • hita upp líkama, rödd og huga til undirbúnings beitingar hreyfi-, sviðs- og raddtækni.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tjá sig á fagmáli um rétta líkams og raddbeitingu og starf leikarans,
    • vinna stutt dansverk út frá þema og rými,
    • tjá sig um ólík dansverk, af ólíkum toga og uppruna,
    • flytja bundinn og óbundinn texta á áhrifaríkan og blæbrigðaríkan hátt,
    • þekkja og geta tjáð sig um rétta líkams- og raddbeitingu,
    • undirbúa og flytja 10 mínútna senu sem unnin er í hóp,
    • greint texta út frá ásetningi og kringumstæðu persónu í leikverki,
    • blanda saman hreyfingu, rödd og leiktækni og móta úr því stutta semfellda senu.
    Námsmat byggir á þeim verkum sem nemandi vinnur sem einstaklingur og í hóp. Nemandi heldur dagbók í því formi sem hann velur sér t.d. glósur, myndir, myndbönd eða upptökur. Þar gerir hann grein fyrir hugmyndum sínum, vinnuaðferðum og niðurstöðum í máli og myndum. Nemandi vinnur radd,leik og dansverkefni einn eða í hóp undir leiðsögn kennara. Matsaðferðir eru í formi jafningjamats, leiðsagnarmats og sjálfsmats.