Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1387272492.16

    Líkamsþjálfun - Spuni
    SVIÐ2LS05
    2
    sviðslistir
    Líkamsþjálfun og spuni
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn miðar að því að þjálfa nemendur í spuna, tjáningu og samsettum aðferðum (devised theatre) innan sviðslista. Áfram er unnið með grunnþætti heilbrigðrar raddbeitingar og hljóðmótun þroskuð enn frekar. Röddin er rannsökuð eftir óhefðbundnum leiðum í gegnum texta og tónlist. Raddspuni er kynntur til sögunnar og röddin notuð í ýmiskonar hljóðagerð. Vinnuaðferðir spunans byggja á því að gera tilraunir með verkefni, leita að möguleikum og finna lausnir, verða meðvituð um, velja og semja. Í dansi og hreyfingu er leitað að persónulegum tjáningarleiðum og þær víkkaðar út með meðvitund og þjálfun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Starfi leikhúslistamannsins í sem víðustum skilningi,
    • útfærslu 15-30 mínútna sviðsetningar út frá hugmynd/hlut/hljóði/mynd/skúlptúr o.s.frv.,
    • verklagi leikhúslistamannsins í flötum strúktúr og þremur mikilvægu þáttum spunans þ.e. að horfa, herma og skapa,
    • eðli og mikilvægi rýmis- hópæfinga og hlustunar í hópsenum,
    • þeim ólíku leiðum sem hægt er að fara við túlkun texta á sviði,
    • notkun raddarinnar til túlkunar án texta á sviði.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Tjá sig á fagmáli um samsettar aðferðir innan sviðslista,
    • setja í samhengi og beita þeim ólíku þáttum sem mynda samsett verk,
    • velja með sér hóp til að vinna samsett verk,
    • gera tilraunir og prófa möguleika líkamans og þróa áfram í spuna,
    • beita röddinni markvisst og með öguðum hætti í vinnu með texta, tóna og hljóð,
    • gera tilraunir með eigin rödd og spinna með henni, frjálst, óhindrað og í flæði gegnum texta, tóna og hljóð,
    • geta búið til áhrifaríka og dýnamíska raddhljóðmynd.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leita að tjáningarformum úr frá mismunandi hugmyndum, t.d. úr náttúrunni, eldhúsinu o.s.frv. og vinna með þær í gegnum spuna,
    • setja saman 15-30 mínútna sviðsetningu út frá t.d. hugmynd/hlut/hljóði/mynd/skúlptúr,
    • setja saman etíður (stuttar sýningar) sem byggja á fundnu efni, ásamt því að geta nýtt sér mismunandi aðferðir við sviðsetningu með flytjandann sem miðpunkt,
    • vinna í hóp að sameiginlegri listrænu verkefni eða sýningu,
    • vera jafnvígur á samsetningu, framkomu í verkum og útlit verkefnanna,
    • tjá sig um innihald bundins og óbundins texta og þá möguleika sem hann gefur til túlkunar,
    • tjá sig um upplifun sína af leik, dans og- radd-/textaraddspuna, bæði sínum eigin og annarra.
    Námsmat byggir á þeim verkum sem nemandi vinnur sem einstaklingur og í hóp. Nemandi heldur dagbók á því formi sem hann velur sér t.d. glósur, myndir, myndbönd eða upptökur. Þar gerir hann grein fyrir hugmyndum sínum, vinnuaðferðum og niðurstöðum í máli og myndum. Nemandi vinnur radd-, leik- og dansverkefni einn eða í hóp undir leiðsögn kennara. Matsaðferðir eru í formi jafningjamats, leiðsagnarmats og sjálfsmats.