Í áfanganum er lagður tæknilegur grunnur að sköpun heildarútlits persónu fyrir sviðs-listaverk. Kennsla fer fram á hársnyrtibraut og á hönnunar- og textílkjörsviði listnámsbrautar. Fagkennari á hársnyrtibraut kennir grunntækni við hárkollugerð, gerð gerviskeggs- og barta svo og undirstöðuatriði í leikhúsförðun. Einnig eru kenndar aðferðir við að vinna gervieyru, vörtur, sár og gervinef. Fagkennari á hönnunar- og textílkjörsviði gefur innsýn í búningahönnun með áherslu á markvissa hugmyndavinnu út frá ákveðnum kveikjum og fjallar um þýðingu þess fyrir sviðsverk að gera persónuleika skil í gegnum sjónræna heild. Unnið er út frá ákveðnu stíltímabili eða út frá frjálsri sköpun og fjallað um mismunandi efnisval, litasamsetningar, snið og form.
Í áfanganum eru undirstöðuatriði í áætlanagerð, varðandi undirbúning og framkvæmd útlitshönnunar, kynnt og áhersla lögð á mikilvægi þess að aðskilja sérhvern verkhluta frá heild, greina hvern hluta fyrir sig og raða þeim síðan aftur saman í heildstæða mynd.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þýðingu þess fyrir sviðsverk að gera persónuleika skil í gegnum sjónræna heild,
undirstöðuatriðum í gerva-og útlitshönnun fyrir sviðslistaverk,
skipulagningu verkferla við útlitshönnun,
þýðingu opinnar og leitandi hugsunar við útlitshönnun fyrir sviðsverk.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita hagnýtum aðferðum við að skapa heildarútlit persónu fyrir sviðslistaverk,
draga fram persónuleika með leikhúsförðun og búningum,
aðstoða við að vinna hárkollur, gerviskegg -og barta, gervieyru, nef sem hluta af persónusköpun,
vinna markvissa hugmyndavinnu við sköpun heildarútlits.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Aðstoða við útlitshönnun í leikhúsi eða fyrir önnur sviðslistaverk,
skapa heildarútlit fyrir ákveðinn karakter, bæði úr frá frjálsri sköpun eða “fantasiu” og út frá fyrirframgefnum forsendum
vinna að hönnun og/eða vinnslu búninga, gerva, förðunar og annarra útlitslegra þátta fyrir áhugaleikhús eða önnur sviðsverk unnin af áhugamönnum.
Nemendur vinna portfolio sem sýnir eigið vinnuferli. Áfanganum lýkur með sýningu nemenda á ákveðnum karakterum sem þeir hafa skapað frá grunni og vinna þeir ljósmyndakynningu á verki sínu og stutt myndbandsverk. Matsaðferðir eru í formi jafningjamats, leiðsagnarmats og sjálfsmats.