Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1387273175.69

    Tæknigrunnur 1 - Útlitshönnun
    SVIÐ2ÚT07
    3
    sviðslistir
    útlitshönnun
    Samþykkt af skóla
    2
    7
    Í áfanganum er lagður tæknilegur grunnur að sköpun heildarútlits persónu fyrir sviðs-listaverk. Kennsla fer fram á hársnyrtibraut og á hönnunar- og textílkjörsviði listnámsbrautar. Fagkennari á hársnyrtibraut kennir grunntækni við hárkollugerð, gerð gerviskeggs- og barta svo og undirstöðuatriði í leikhúsförðun. Einnig eru kenndar aðferðir við að vinna gervieyru, vörtur, sár og gervinef. Fagkennari á hönnunar- og textílkjörsviði gefur innsýn í búningahönnun með áherslu á markvissa hugmyndavinnu út frá ákveðnum kveikjum og fjallar um þýðingu þess fyrir sviðsverk að gera persónuleika skil í gegnum sjónræna heild. Unnið er út frá ákveðnu stíltímabili eða út frá frjálsri sköpun og fjallað um mismunandi efnisval, litasamsetningar, snið og form. Í áfanganum eru undirstöðuatriði í áætlanagerð, varðandi undirbúning og framkvæmd útlitshönnunar, kynnt og áhersla lögð á mikilvægi þess að aðskilja sérhvern verkhluta frá heild, greina hvern hluta fyrir sig og raða þeim síðan aftur saman í heildstæða mynd.
    Nemendur hafi lokið 60 einingum á listnáms- eða hársnyrtibraut.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Þýðingu þess fyrir sviðsverk að gera persónuleika skil í gegnum sjónræna heild,
    • undirstöðuatriðum í gerva-og útlitshönnun fyrir sviðslistaverk,
    • skipulagningu verkferla við útlitshönnun,
    • þýðingu opinnar og leitandi hugsunar við útlitshönnun fyrir sviðsverk.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita hagnýtum aðferðum við að skapa heildarútlit persónu fyrir sviðslistaverk,
    • draga fram persónuleika með leikhúsförðun og búningum,
    • aðstoða við að vinna hárkollur, gerviskegg -og barta, gervieyru, nef sem hluta af persónusköpun,
    • vinna markvissa hugmyndavinnu við sköpun heildarútlits.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Aðstoða við útlitshönnun í leikhúsi eða fyrir önnur sviðslistaverk,
    • skapa heildarútlit fyrir ákveðinn karakter, bæði úr frá frjálsri sköpun eða “fantasiu” og út frá fyrirframgefnum forsendum
    • vinna að hönnun og/eða vinnslu búninga, gerva, förðunar og annarra útlitslegra þátta fyrir áhugaleikhús eða önnur sviðsverk unnin af áhugamönnum.
    Nemendur vinna portfolio sem sýnir eigið vinnuferli. Áfanganum lýkur með sýningu nemenda á ákveðnum karakterum sem þeir hafa skapað frá grunni og vinna þeir ljósmyndakynningu á verki sínu og stutt myndbandsverk. Matsaðferðir eru í formi jafningjamats, leiðsagnarmats og sjálfsmats.