Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1387273811.43

    Sviðslistamenn
    SVIÐ3SL05
    4
    sviðslistir
    Sviðslistamenn
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um sviðslistir út frá ólíkum sjónarhornum. Lögð er árhersla á að nemendahópurinn móti sýningu út frá skilgreindri hugmynd. Nemendur fá að kynnast mismunandi nálgun ólíkra sviðslistamanna s.s. leikskálda, leikstjóra, danshöfunda, gjörningalistamanna. Þá verður einnig leitast við að veita innsýn í vinnu annarra fagstétta s.s. búninga- og sviðsmynda-hönnuða, ljósa-og hljóðmanna, tónlistarstjóra, sýningarstjóra o.s.frv. Nemendur vinna að uppsetningu sviðslitaverks undir faglegri handleiðslu kennara og fagfólks innan sviðslista.
    SVIÐ2LS05, SVIÐ2ÚT07 og SVIÐ2SY07
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Þeim fjölmörgu verkum sem þarf að vinna í leikhúsi/sýningarrýmum í aðdraganda sýninga,
    • hvernig hægt er að hugsa leikverk út frá mismunandi sjónarhornum þeirra listamanna sem að uppsetningunni koma,
    • því ferli sem hefst með hugmyndavinnu í hóp og lýkur með skrifum á einföldu handriti,
    • mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir hið margþætta vinnuferli sem liggur að baki uppsetningu sviðsverks,
    • hvernig hugmyndavinna að sviðsmynd, búningum, lýsingu og hljóði fer fram og hvaða hlutverki þessir þættir gegna í sýningunni,
    • mikilvægi opins huga og viðhorfa til að viðhalda skapandi vinnuumhverfi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja saman einfaldan texta og útfæra hugmyndir sýnar út frá þeim ólíku listgreinum sem mætast í sviðslistum,
    • nota líkama, sviðsmynd, leikmuni, ljós og hljóð til að hafa áhrif á og „mynda pensilfar í rými”,
    • koma eigin hugmyndum á framfæri innan leikhóps og vinna þeim brautargengi,
    • beita tungumáli leikhússins og taka þátt í leikhúsumræðu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í samræðum á faglegum grundvelli um þau ólíku listform sem fram koma í ólíkum sviðslistaverkum,
    • vera virkur þáttakandi í hugmyndavinnu í stórum og litlum hópum,
    • rökstyðja listrænar ákvarðanir sínar,
    • beita fagmáli í samskiptum við fagfólk innan sviðslista,
    • vinna jöfnum höndum með þau ólíku listform sem notuð eru innan sviðslista,
    • geta upplifað, notið og greint hefðbundin og óhefðbundin sviðslistaverk útfrá innsýn sinni í listræna og hagnýta vinnu,
    • vinna í dýnamísku og síbreytilegu umhverfi skapandi starfs.
    Gestakennarar gefa nemendum umsögn um framlag þeirra í vinnuferlinu og lokaverkefni áfangans. Þeir meta listrænt innsæi, hugmyndaríki, áræðni í útfærslum, samstarfshæfni og samviskusemi nemanda. Nemendur skila hugmyndabók um eigin upplifun af vinnuferlinu og meta eigið framlag. Í hugmyndabókinni er gerð grein fyrir öllum listrænum ákvörðunum varðandi uppbyggingu á leikverki, leikstjórn og hönnun búninga- og sviðsmyndar.