Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1387275228.88

    Samtímalistasaga
    LSAG2SL03
    1
    Listasaga
    Samtímalistasaga
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er fjallað um listasögu vesturlanda frá 1945 til dagsins í dag og forsendur sjónlista kannaðar. Fjallað verður um stöðu sjónlista í samtímanum og þær hræringar, hugmyndir og stílbrigði sem einkenna tímabilið, en samruni ýmissa listforma varð áberandi á tímabilinu. Í því samhengi er fjallað um hugtakið sviðslistir og áhrif hugmynda listamanna 20. aldarinnar á sviðslistir samtímans könnuð. Nemendur rannsaka birtingarmynd listarinnar í samhengi við tíðaranda samfélagsins s.s. með hliðsjón af stjórnarfari, fjölmiðlun, lífsgæðum, hagsmunum einstakra hópa, tísku, hefðum, hugmyndafræði og heimsmynd.
    SSVL1LG03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu stílbrigðum sjónlista frá 1945 til dagsins í dag og þeirri hugtakanotkun sem beitt er í umfjöllun um þær,
    • verkum leiðandi listamanna á tímabilinu og hugmyndum þeirra,
    • sögulegum, þjóðfélagslegum og hugmyndafræðilegum forsendum listsköpunar á tímabilinu,
    • þeim fjölbreytileika í listsköpun sem einkennir tímabilið, þeim nýju miðlum sem listamenn nota til að koma hugmyndum sínum á framfæri og þeim þáttum sem liggja til grundvallar þessari margbreytni,
    • tengslum sjónlista og sviðslista í víðu samhengi,
    • á hlutverki listarinnar í mannkynssögunni.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina samtíma myndverk með tilliti til aðferðar, stíls, uppbyggingar, tjáningar listamannsins og eigin túlkunar,
    • afla sér þekkingar og heimilda um viðfangsefni sín eftir margvíslegum leiðum,
    • greina verk og hugmyndir listamanna samtímans og setja í sögulegt samhengi,
    • setja niðurstöður sínar fram á skilmerkilegan hátt með fjölbreyttum aðferðum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í gagnrýninni og greinandi umræðu um samtímalist með vísun í hugmyndir, kenningar og verk listamanna sem og fræðimanna tímabilsins,
    • vinna kynningarefni um listamenn, verk þeirra, hugmyndir, áhrifavalda og sögulegt samhengi á fræðilegan og listrænan hátt,
    • vera læs á myndmál samtímalistarinnar,
    • njóta verka samtímalistamanna,
    • miðla hugmyndum samtímalistamanna til annarra,
    • vinna að eigin verkum með tilfinningu og virðingu fyrir sögulegu samhengi,
    • varpa ljósi á samtímann eins og hann birtist í spegli listarinnar.
    Námsmat byggir á fjölbreyttum aðferðum nemenda í vinnu kynningarefnis á niðurstöðum í áfanganum s.s. með fyrirlestrum, greinargerðum, ferilmöppu, kynningarmyndböndum eða margmiðlunarefni. Matsaðferðir eru í formi jafningjamats, leiðsagnarmats og sjálfsmats.