Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1388465897.7

    Frjálsar íþróttir 01
    FRÍÞ3ÞK02
    1
    Frjálsar íþróttir
    kraftþjálfun, Þrekþjálfun, þolþjálfun
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    Viðfangsefni áfangans eru þrek-, kraft- og þolþjálfun auk þess sem nemendur kynnast nokkrum greinum frjálsra íþrótta s.s. kúluvarpi, hástökki, sprett- og langhlaupum og fleiri greinum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
    • hvernig hægt er að bæta þrek, kraft og þol með skipulögðum æfingum
    • grunnreglum helstu greina frjálsra íþrótta
    • grunntækniatriðum íþróttagreinanna við það að iðka þær
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma góða og skipulagða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu
    • útfæra og framkvæma grunntækniatriði nokkur frjálsíþróttagreina
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
    • halda sér í góðu líkamlegu formi
    Í áfanganum eru engin verkefnaskil heldur þurfa nemendur að standast mætingarkröfur áfangans. Áfanginn er metinn út frá mætingu, virkni og jákvæðni.