Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1393426593.97

    Örverufræði
    LÍFF2ÖR05
    8
    líffræði
    örverufræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum valáfanga í örverufræði verður farið yfir stöðu örverufræðinnar innan náttúrufræðinnar; gerð og flokkun dreifkjörnunga og frumvera; lífsstarfsemi örvera, s.s. efnaskipti, æxlun og fjölgun, dreifingu; mikilvægi örvera í náttúrulegum vistkerfum; not fyrir örverur í iðnaði; skemmdir og sjúkdómar af völdum örvera og varnir gegn þeim; helstu flokkar baktería verða kynntir; frumatriði í veirufræði, s.s. staða veira í lífheiminum, gerð, fjölgun, áhrif veira á hýsla, veirusjúkdómar og varnir gegn þeim; flokkun sveppa og staða frumdýra í lífheiminum.
    Líff1GF04 eða Líff2GR05. Má taka áfangann samhliða undanförunum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einkennum og byggingu dreifkjörnunga og frumvera
    • grunnatriðum í flokkunarfræði örvera
    • notkun örvera í rannsóknum, lyfjaframleiðslu og iðnaði
    • smitleiðum og sjúkdómum af völdum örvera
    • helstu aðferðum við sjúkdómavarnir og sótthreinsun
    • stöðu veira í lífheiminum og samskiptum þeirra við hýsla
    • helstu aðferðum við einangrun, ræktun og greiningu örvera
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina helstu tegundir örvera á grundvelli einkenna þeirra
    • flokka örverur á grundvelli einkenna þeirra og niðurstaðna greiningarprófa
    • teikna einfalda skýringarmynd af dreifkjörnungi og merkt helstu frumulíffæri
    • taka örverusýni og búa þau til ræktunar
    • vinna með örverur á öruggan hátt
    • skrá niðurstöður athugana og setja fram í skýrslum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka skilning á almennri umfjöllun á sviði örverufræði
    • taka rökstudda afstöðu til dægurmála sem tengjast örverum
    • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. sýkingarhættu og sjúkdóma af völdum örvera
    • afla sér frekari þekkingar á sviði örverufræði
    • gera sér grein fyrir samspili örverufræði og annarra náttúrufræðigreina
    • tengja örverufræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar.
    Námsmat byggir á kaflaprófum, verkefnaskilum og verklegum æfingum og lokaprófi í lok annar.