Áfanginn er samþættur, með það að markmiði að auka skilning og færni nemenda í félagsmótun og gagnrýnni hugsun, auka sjálfstæði í vinnubrögðum og úrræðasemi miðað við þær aðstæður sem myndast geta í daglegu lífi. Stuðst er við sex meginstoðir menntunar eins og þær koma fram í nýrri Aðalnámskrá framhaldsskóla – Læsi í víðum skilningi, menntun til sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og skapandi starf.
Nemendur læra að nýta upplýsingatækni í námi sínu, þjálfast í að vinna með öðrum, þurfa að sýna frumkvæði og læra að bera ábyrgð á eigin námi. Áfanginn byggist alfarið á verkefnavinnu, einstaklings-, para- og hópverkefni, þar sem áhersla er lögð á framkomu, tjáningu og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum ásamt leikni í daglegum samskiptum.
Nemendur fá einnig aðstoð við heimanám og verkefnavinnu sem tengjast öðrum áföngum sem þeir eru skráðir í.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íslensku samfélagi og samfélagsgerð
á helstu hugtökum, viðfangsefnum og orðfæri daglegs lífs
ólíkum grunngildum og siðferði í samfélaginu
þeim þáttum sem móta samfélagið, bæði innan skólans og utan.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja fram á skýran og skapandi hátt efni og upplýsingar.
notkun internets til upplýsingaleitar, uppbyggilegra samskipta og úrlausna verkefna af ýmsum toga.
að skoða og meta ólíkt gildismat og viðhorf með tilliti til samhengis orsaka og afleiðinga.
skipuleggja tíma sinn á raunhæfan hátt, hvort sem er gagnvart skóla, vinnu eða daglegu lífi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
auðga og þroska samskiptahæfni sína, bæði í persónulegum samskiptum og við formlegri aðstæður.
bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og geta sett sig í spor annarra.