Áfanginn er að mestu leyti verklegur og kynnir útivist sem hægt er að stunda þegar er snjór. ísklifur, skíði (alpa, fjalla og göngu), snjóbretti, snjóhúsagerð og fjallamennska. Helmingur tímafjöldans fer í ferðir á eigin vegum til að auka hæfni í undirbúning, skipulagningu, rötun, kortalestri og hópstjórn. 1 tveggja nátt ferð og svo styttri ferðir með samnemendum þar sem þeir skiptast á að leiða hópinn. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í ísklifri, skíðun (alpa, fjalla og göngu), snjóbrettun, gerð snjóhúsa, snjóflóðaathugun og fjallamennsku. Mikil áhersla verður lögð á að nemendur verði sjálfstæðir í óbyggðum, geti metið aðstæður, t.d. við breytt veðurskilyrði, með tilliti til öryggis og tekið skynsamar ákvarðanir varðandi t.d. leiðarval og notkun öryggisbúnaðar.
A.m.k. 10 einingar í útivist eða fjallamennsku á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, skíðaferðir, ísklifur og fl.
náttúru Íslands og góðrar umgengni við hana
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leggja mat á aðstæður í óbyggðum og beita þeim sérhæfða búnaði sem notaður er til útivistar
setja saman ferðaáætlun og leiða hóp í styttri ferð
rata eftir áttavita og GPS staðsetningartæki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta aðstæður með tilliti til öryggis og taka skynsamar ákvarðanir í samræmi við þær, sérstaklega ef breytingar verða á aðstæðum eins og t.d. breytt veðurskilyrði eða snjóalög,
geta stundað útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar
ferðast um óbyggðir Íslands á öruggan og ábyrgan hátt
geta tekið þátt í upplýstri umræðu og rökræðum um málefni er tengjast útivist
vera meðvitaður um umhverfi sitt, hafa lært að njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
vera vel undirbúnir fyrir frekara nám einkum á sviði kennslu útivistar á háskólastigi
Nemendur fara í 8 mismunandi ferðir sem eru bæði skipulagðar af kennara og þeim sjálfum og skrifa lokaskýrslu um allar ferðirnar.