Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1400166593.39

    Íþróttagrein, Knattspyrna
    ÍÞRG3KN02
    3
    íþróttagrein
    knattspyrna
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og aðalatriðið er að nemendur fái góða hreyfingu í formi þess að iðka íþróttagreinina. Í áfanganum verður farið yfir helstu grunnatriði og reglur greinarinnar.
    5 einingar í lýðheilsu á 1. þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi góðrar og heilsusamlegrar hreyfingar í hinu daglega lífi
    • mikilvægi upphitunar og niðurlags í upphafi og lok hreyfingar
    • grunnreglum íþróttagreinarinnar við það að iðka íþróttagreinina
    • grunntækniatriðum íþróttagreinarinnar við það að iðka íþróttagreinina
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja og framkvæma upphitun og niðurlag út frá aðalhlutanum
    • útfæra og framkvæma grunntækniatriði íþróttagreinarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
    Áfanginn er eingöngu verklegur þar sem mæting, virkni og jákvæðni í kennslustundum gildir til einkunnar. Nemendur þurfa einnig að standast mætingarkröfur áfangans.